Jæja þá er komin tími til að blogga.
Ég er ekki á leiðinni til London sem au pair. Bróðir Evu (móðir
Andreu sem ég átti að passa) er hættur í vinnunni þannig að hann
fer með þeim.
Um páskanna var ég í rvk með Andrési, Hafdísi og Einar Geir og
fórum við í keilu, sund, kringluna, til Sandgerðis o.m.fl. Það var
gaman
Svo í gær fórum við ásamt Ólínu, Einar (bróðir
hafdísar) og Úlfi, hund Einars, í Kjarnaskóg að leika okkur og ég
hef aldrei skemmt mér svona vel 
Ég er að fara í fermingu á morgun til Ingibjargar. Og það verður
ábyggilega gaman
Í mai þá fara mamma, pabbi, Ólína, Andrés,
Hafdís og Einar Geir til Jóa og co en ég verð ein heima með bono og
mun ábyggilega leiðast mjög mikið en reyni að skemmta mér.
Jæja ef ekkert meira að segja svo lifið heil og sæl 
Kv. Svandís Ósk 